Að almenn aðhaldskrafa eigi ekki við um málaflokk fatlaðs fólks og að afnema skuli aðhaldskröfu á málaflokk fatlaðs fólks og NPA, sem fram kemur í fjárlögunum.
Að fjárframlög ríkisins til fjármögunar NPA samninga fyrir árið 2024 verði aukin til að tryggja fjármagn fyrir þeim fjöldaNPAsamninga sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði laga nr. 38/2018.
Þegar NPA var lögfest fyrir fimm árum, árið 2018, ríkti almenn gleði meðal fatlaðs fólks. Réttur fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs til jafns við aðra var nú bundinn í lög og áætlanir uppi um að fjölga NPA samningum um hátt í 100 samninga til ársins 2022. Nú kæmist loksins skriður á málin!
Fjölgun samninga staðið í stað Fyrsta árið eftir lögfestinguna kom vissulega svolítill kippur í fjölgun NPA samninga en árin þar á eftir stóð fjöldi samninga í raun í stað. Í lok síðsta árs voru NPA samningar 89 talsins í stað þeirra 172 sem kveðið hafði verið á um í lögum. Í desember í fyrra voru svo sett ný lög þar sem lofað var allt að 50 nýjum samningum í ár og að fjöldi NPA samninga skyldi vera orðinn allt að 172 í lok næsta árs, 2024. Hingað til hafa hins vegar eingöngu borist óstaðfestar fréttir af 20 nýjum NPA samningum á þessu ári en ekki 50 eins og lofað var.
Þrír ráðgjafar frá NPA miðstöðinni fóru í tveggja daga vinnuferð til Akureyrar dagana 24.-25. ágúst síðastliðinn. Tilgangur ferðarinnar var að styrkja tengslin við félagsfólk á landsbyggðinni og færa þjónustu NPA miðstöðvarinnar nær þeim.