NPA námskeið 1: Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf
HVENÆR? Fimmtudagur 12. október, kl. 13:00-16:00.
HVAR? NPA miðstöðin, Urðarhvarf 8, inngangur A, 2. hæð.
SKRÁNING: Smellið á þennan hlekk.
SÍÐASTI SKRÁNINGARDAGUR: 10. október 2023.
Takmarkað pláss - skráðu þig áður en plássin fyllast!
Viðfangsefni
• Kynning á námskeiðsröð NPA miðstöðvarinnar.
• NPA hugmyndafræðin og saga sjálfstæðs lífs.
• H-in fimm og mikilvægi þeirra.
• Aðstoð, ekki umönnun.
• NPA umsóknarferlið.
• NPA í framkvæmd og sjálfstætt líf.
• Umræður.
Námskeiðið er hið fyrsta í námskeiðsröð í NPA grunnnámi sem NPA miðstöðin stendur fyrir.
Markmið námskeiðs
• Að þátttakandi öðlist grunnþekkingu á NPA og framkvæmd þess.
• Að þátttakandi öðlist þekkingu á helstu hugtökum, áherslum og sögu NPA.
Leiðbeinendur
Erna Eiríksdóttir, fræðslustýra og NPA ráðgjafi.
Þorbera Fjölnisdóttir, NPA verkstjórnandi.
Nánari upplýsingar
NPA grunnnámskeið NPA miðstöðvarinnar veita alhliða þekkingu og góða innsýn í NPA. Námskeiðin eru þróuð undir handleiðslu og út frá forsendum NPA notenda. Ekkert um okkur án okkar!
Fyrir hverja? Námskeiðið er öllum opið en félagsfólk og aðstoðarfólk NPA miðstöðvarinnar nýtur forgangs. Takmörkuð sæti í boði.
Stök námskeið: Námskeið NPA miðstöðvarinnar þarf ekki að taka í réttri röð. Hvert námskeið er sjálfstætt framhald af því sem var á undan.
Skipting í hópa: Á námskeiði 1 er einn hópur fyrir alla þátttakendur..
Aðgengi: Fullt aðgengi.
Veitingar: Léttar veitingar í hléi.
English speaking: The course is in Icelandic but will be offered in English in the future. Waitlist registration is open.